 Gyðinga SagaGyðinga saga var rituð á Íslandi á 13. öld. Þessi saga veitir innsýn í hvernig Íslendingar á miðöldum kynntust sögu og hefðum Gyðinga. |  Fyrsta háhýsiðÁrið 1912 settist danskur kaupmaður og Gyðingur að á Íslandi. Hann hét Fritz Nathan og var meðstofnandi fyrirtækisins Nathan & Olsen. Árið 1917 reisti hann fyrsta háhýsið í Reykjavík við Austurstræti 16, hannað af Guðjóni Samúelssyni. Það var einnig fyrsta húsið í borginni sem var lýst upp með rafmagni. Mynd: 1912.is |  Tónlistarmenning ÍslendingaTónlistarmennirnir Robert Abraham og Heinz Edelstein fengu athvarf á Íslandi eftir að hafa flúið frá Þýskalandi nasismans á fjórða áratug síðustu aldar og gegndu lykilhlutverki í að móta upphaf klassískrar tónlistarsenu landsins. Áhrif þeirra á tónlistarmenningu Íslendinga voru djúpstæð og varanleg. Mynd: musik.is |  Yom Kippur (Friðþægingardagurinn) 1940Árið 1940 var haldin Yom Kippur-guðsþjónusta í Gúttóhúsinu í Reykjavík. Gyðingar á flótta og breskir hermenn voru viðstaddir. Mynd: Wikipedia |  Rosh Hashana (Nýársdagur Gyðinga) 1941Bandarískir og breskir Gyðingar söfnuðust saman í gamla tækniskólanum til að fagna Rosh Hashana árið 1941. Photo credit: National Museum of American Jewish Military History |
|---|
 BænakverHér eru nokkur þeirra bænakvera sem voru notuð við hátíðarguðsþjónustur á Íslandi snemma á fimmta áratugnum. |  Grafir GyðingaGamlar grafir Gyðinga má finna í kirkjugörðum á Íslandi. Þetta er gröf Helene Lea Mann sem lést árið 1945. Ljósmynd: jewishphotolibrary.com |  Hymie SteinbergFlugmaðurinn Hymie Steinberg var í Konunglega kanadíska flughernum í síðari heimsstyrjöldinni. Þann 19. desember 1944, við eftirlit með kafbátum, hrapaði flugvél Steinbergs á fjallshlíð í grennd við Reykjavík. |  ÚtförÚtför Hymie Steinbergs og áhafnarfélaga hans sem fórust í flugslysi við eftirlit með kafbátum þann 19. desember 1944. Útförin fór fram í Fossvogskirkjugarði. Ljósmynd: Canadian Virtual War Memorial |  HelförinÁ meðan Helförinni stóð var hörð innflytjendastefna á Íslandi og Gyðingum var að mestu leyti meinað að koma til landsins, með örfáum undantekningum. Smelltu hér til að lesa um rannsóknir og sýningu listamannsins Eriks DeLuca. |
|---|
 TrjáræktÁ níunda áratugnum hóf félagið Ísland-Ísrael trjárækt í þessum skika í Heiðmörk. Gyðingasamfélagið tók síðar við skikanum og nú er árleg hefð samfélagsins að fara þangað og planta trjám. |  Samkomur GyðingaÁ níunda áratugnum söfnuðust Gyðingar á Íslandi saman á ýmsum stöðum í Reykjavík til að halda upp á hátíðir og athafnir. |  Prentuð á ÍslandiTanya er grundvallarrit gyðinglegrar heimspeki og dulspeki eftir rabbínann Shneur Zalman frá Liadi. Bókin var prentuð á Íslandi árið 1984 til að gera sígildar kenningar hennar aðgengilegar öllum. |  Menningarfélag GyðingaÁrið 2018 var Menningarfélag Gyðinga á Íslandi - Beit Tovah Chabad - stofnað að frumkvæði Avraham Feldman rabbína og Mushky Feldman. |  LjósastikanÁrið 2018 var ljósastika tendruð á Laugaveginum, og var það í fyrsta sinn sem gyðinglegri hátíð var opinberlega fagnað á Íslandi. Þessi viðburður varð að árlegum fögnuði og hafa opinberir embættismenn og fulltrúar borgarstjórnar og yfirvalda tekið þátt. Ljósmynd: Gabriel Rutenberg |
|---|